Hildur, Letidýrið sjálft!

Ruglið mitt á netinu sem enginn nennir að lesa. Hmmm... eða hvað??

sunnudagur, mars 23, 2003

Núna er litla dýrið mitt orðið 6 mánaða. Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður fljótt. Mér finnst svo stutt síðan ég vaknaði hérna með fyrstu verki, eyddi deginum hérna heima með hríðar og fór svo uppá fæðingardeild og fæddi litlu dömuna. Öll þessi reynsla fannst mér æðisleg. Meðgangan gekk rosalega vel, fyrir utan grindargliðnun sem var þó ekki á háu stigi, fæðingin var frekar auðveld fannst mér og svo kom þessi líka engill útúr pakkanum. Ég get ekki beðið eftir því að gera þetta aftur!! Það er ótrúlegt hvað maður getur ekki ímyndað sér börnin sín áður en þau fæðast, það er kannski það sem kom mér mest á óvart, það að fatta að þetta barn væri mitt. Hún leit allt öðruvísi út en ég hélt, samt var ég ekki búin að ímynda mér neitt, enda er voða lítið hægt að ímynda sér um manneskju sem maður hefur aldrei séð. Sem betur fer reyndist þetta litla dýr svefnpurrka eins og foreldrar sínir. Við hjónin vorum oft hláturefni hjá vinafólki vegna svefnvenja okkar. Við að stíga fram úr rúminu þegar dagurinn er hálfnaður hjá öðrum. Við gátum rétt vaknað til að ná formúlunni, stundum þurftum við að láta klukkuna hringja til að geta vaknað nógu tímanlega fyrir það. Fyrst deildi unginn þessu áhugamáli með okkur foreldrunum, en núna er engin miskunn, á fætur klukkan átta, hvort sem það er virkur dagur eða helgi. Ég held reyndar að ég sé fræg svefnpurrka hjá vinkonunum, en það er kannski efni í annað innlegg. Það er engin tilviljun að ég valdi mér bloggið letidýrið.

föstudagur, mars 21, 2003

Þetta var ég að prófa frá blogginu hennar Sillu. Ég held að þetta geti alveg verið. Ég drekk ekki einu sinni kaffi!!

Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Svart te!
.. þótt það hljómi furðulega.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?

þriðjudagur, mars 18, 2003

Ég var að horfa á þátt Opruh (ruglaðann) og þar var verið að tala um þáttinn/myndina sem Martin Bashir gerði um Michael Jackson. Ýmislegt kom nú þar fram sem ég nenni ekki að fara útí, en einn punktur frá einni konu vakti athygli mína. Það er hvernig fjölmiðlar snúa útúr öllu og gera mikið úr öllu sem fræga fólkið gerir. Ég segi nú bara greyið fræga fólkið að þurfa að díla við þetta. Það eru ljósmyndarar að taka myndir af þér á ströndinni, í matvörubúðinni, heima hjá þér og í raun hvar sem þú kemur. Og svo á fólk að hneykslast á þessu! Eins og t.d. myndir af einhverjum frægum með poka frá skyndibitastað, hvað er fréttnæmt við það??? Má frægt fólk ekki borða skyndibitamat? Þessi og hinn (aðallega konur) líta svona út í baðfötum. Mér finnst að fólk eigi að klæða sig alveg nákvæmlega eins og það er sátt við. Á allt frægt fólk að vera með fullkomna, lýtalausa líkama? Fólk yfirhöfuð er ekki svona, frægt fólk er engin undantekning. Svo eru það nú hjónaböndin sem virðast endast stutt á flestum bæjum í Hollywood, er það ekki þeirra eigin mál hverjum það er gift og ekki gift? Kommon, annað eins hefur nú gerst hjá venjulegu fólki. Það mætti halda að fjölmiðlar ætluðust til þess að frægt fólk væri skírlíft, bindindisfólk og grænmetisætur!!